Málefnahópi þessum er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á vinnumarkað og byggðamál. Svara þarf mikilvægum spurningum um hreyfanleika vinnuafls, sveigjanleika í kaupmætti, áhrif á atvinnuþátttöku, atvinnuleysi, vinnutíma, vinnumenningu og fleiri þætti.
Þessum hópi er ennfremur ætlað að fjalla um byggðamál og áhrif aðildar á byggðir landsins og ekki síst á aðgang Íslands að byggðaáætlunum Evrópusambandsins.
Hópnum er stýrt af Sigríði Margréti Oddsdóttur og Katrínu Olgu Jóhannesdóttur.
Hópur um málefni launafólks og vinnumarkaðarins hefur skilað fyrstu stöðuskýrslu úr sinni vinnu. Nefndin hefur fengið á sinn fund töluverðan fjölda gesta, m.a. aðila vinnumarkaðarins, sérfræðinga úr stjórnsýslunni og fulltrúa sveitarfélaga. Fram hefur komið með skýrum hætti að löggjöf og máefni launafólks og vinnumarkaðarins fellur að nær öllu leyti undir ákvæði EES-samningsins og Ísland því tekið upp nánast alla evrópska löggjöf á þessu sviði.