Málefnahópi um stjórnskipunina er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á fullveldi Íslands. Svara þarf spurningum um valdaafsal til yfirþjóðlegra stofnanna Evrópusambandsins. Hópnum er ætlað að fjalla um hugsanlegar stjórnarskrárbreytingar sem þyrfti að grípa til vegna aðildar, áhrif á Alþingi og íslenskar stofnanir svo fátt eitt sé nefnt.
Hópnum er ennfremur ætlað að fjalla um ný svið sem kæmu inn með aðild sem snúa að dóms- og innanríkismálum sem og fjalla um framtíð EES-samningsins.
Hópnum er stýrt af Ragnhildi Helgadóttur og Katrínu Helgu Hallgrímsdóttur.
Hópurinn sem skoðar stjórnskipun, afsal fullveldis og áhrif Íslands hefur tekið saman ítarlegt yfirlit um sinn málaflokk. Þar er fjallað um fullveldið, stjórnarskrárbreytingar, þjóðaratkvæðagreiðslu, stofnanir ESB og EES, dóms- og innanríkismál og Lissabon-sáttmálann, sem var felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu á Írlandi í sumar og náði því ekki fram að ganga.
Frá 1. drögum hefur verið bætt við atriðum sem fram hafa komið á fundum, þ.m.t. opnum fundi þann 16. desember. Frekari viðbætur, einkum um Lissabon-sáttmálann, eru væntanlegar.