Málefnahópi þessum er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á lýðræði og jafnrétti. Svara þarf mikilvægum spurningum um hvort gera þyrfi breytingar á íslenskri löggjöf er varðar jafnréttismál eða mannréttindamál. Hópnum er m.a. ætlað að skoða áhrif aðildar á tengsl kjósenda
og stjórnmálamanna, hvað áhrif tilfærsla á samningumboði við þriðju ríki til Framkvæmdastjórnar hefði og loks að skoða kostnað Íslands við aðild.
Hópnum er stýrt af Hönnu Katrínu Friðriksson og Ástu Þórarinsdóttur.
Starfshóp um lýðræðis og jafnréttismál hefur borist svar frá Jafnréttisstofu í tengslum við spurningar um breytingar á íslenskri löggjöf er varðar jafnréttismál eða mannréttindamál við inngöngu í ESB. Svarið má nálgast með því að ýta á "Lesa nánar".
Jafnrétti og lýðræði - drög 2
Hér er farin sú leið að árétta enn frekar ákveðin atriði sem upp komu þegar drög 1 voru unnin (sjá hér á síðunni). Upplýsinga, skoðana og hugmynda var aflað í samtölum við fjölda fólks, jafnt fræðimanna sem leikmanna. Þá var leitað í smiðju ýmissa fræðigreina sem skrifaðar hafa verið um efnið og er vitnað í nokkrar þeirra hér. Undir kaflanum Ítarefni hér á síðu málaflokks Evrópunefndarinnar um jafnrétti er síðan að finna fleiri greinar um sama málefni.