Á sameiginlegum fundi þingflokks og miðstjórnar Sjálfstæðisflokksins í dag var tillaga Geirs H. Haarde, formanns flokksins og forsætisráðherra, um að flýta fyrirhuguðum landsfundi flokksins til 29. janúar 2009 og skipa sérstaka nefnd um Evrópumál innan Sjálfstæðisflokksins samþykkt einróma.
Eftir hrun bankanna í byrjun október og miklar efnahagsþrengingar í kjölfarið blasir við gjörbreytt landslag í íslensku samfélagi. Næsta ár verður íslensku þjóðinni erfitt og Sjálfstæðisflokkurinn vill marka skýra stefnu sem tekur mið af breyttum aðstæðum. Landsfundi flokksins, sem ráðgert var að færi fram í október 2009, verður flýtt og hann haldinn dagana 29. janúar til 1. febrúar nk. þar sem mörkuð verða stefnumið flokksins til næstu missera.
Miðstjórn flokksins mun skipa sérstaka Evrópunefnd sem skoðar stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ríkjum Evrópu og valkostum Íslands í alþjóðasamstarfinu og skilar af sér skýrslu til landsfundar. Á grundvelli hennar mun landsfundur flokksins meta hvort framtíð Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan þess. Í ályktun síðasta landsfundar, sem haldinn var í maí á síðasta ári, kom fram að aðild að Evrópusambandinu þjónaði ekki hagsmunum íslensku þjóðarinnar miðað við þáverandi aðstæður en áréttað var í ályktuninni að sífellt væri í skoðun hvernig hagsmunum Íslands verði best borgið í samstarfi Evrópuríkja.
Ný Evrópunefnd mun standa fyrir opinni og málefnalegri umræðu um kosti og galla aðildar Íslands að Evrópusambandinu. Formaður nefndarinnar verður Kristján Þór Júlíusson, alþingismaður og Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, verður varaformaður. Undir nefndinni munu starfa vinnuhópar sem fjalla um stærstu álitaefnin sem lúta að stöðu Íslands í samstarfi við Evrópuþjóðir. Hóparnir munu m.a. fjalla um eftirfarandi álitaefni:
Málaflokkar og verkstjórar sem hér um ræðir eru:
Málefnanefndir Sjálfstæðisflokksins munu hraða sinni vinnu eins og kostur er fram að landsfundi og vinna drög að ályktunum fyrir fundinn. Hver og ein nefnd skal setja saman tillögur að aðgerðum í viðkomandi málaflokkum. Niðurstöður málefnanefndanna munu leggja grunn að vinnu við endurnýjun á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Málefnanefndirnar munu sérstaklega skoða áhrif inngöngu í Evrópusambandið á viðkomandi málaflokk.